Sagan

Heim Sagan Hugmyndafræðin Aðstaðan Senda póst
Homepage History Theory Work Environment      

Saga tölvunotkunar
Arnar Yngvason tók saman

Summary: The children and their parents collected money to buy a computer in 1998. The old Macintosh they bought was for the children and in the following years both children and teachers learned to use this technology in many creative ways.

Rekja má þróunarstarf með tölvur í leikskólanum Iðavelli aftur til síðla árs 1998 þegar börn og foreldrar söfnuðu fyrir notaðri tölvu. Áður átti leikskólinn tölvu sem staðsett var á skrifstofu leikskólastjóra en sú var aðallega notuð af leikskólastjóra þó annað starfsfólk gæti fengið afnot af henni eftir samkomulagi. Tölvan sem börnin keyptu var sett á gang leikskólans, í eins konar hol þar sem var mikill umgangur og starfsemi. Má segja að þar með hafi línurnar verið lagðar varðandi hvernig tölvur yrðu notaðar í framtíðinni á Iðavelli.

Kenningar um tölvukennslu gera yfirleitt ráð yfir að tölvur séu staðsettar í sérstökum tölvukrók eða tölvuveri og þær aðeins notaðar í tölvutímum. Kenningar sem benda á að tölvur séu bæði verkfæri og leikföng fylgir yfirleitt annars konar notkun. Meðal annars að tölvur séu staðsettar þar sem mikið er um að vera og aðgangur að þeim allan daginn og sú leið var valin strax í upphafi á Iðavelli.

Í fyrstu tölvunni voru sett upp vel valin forrit eins og margmiðlunarforritið KidPix og nokkur fleiri. Hverju barni var kynnt tölvan og forritin en eftir það varð tölvan eins og hvert annað leikfang. Ef starfsfólk eða börn höfðu áhuga var kveikt á tölvunni og þá fengu börnin sinn tíma í henni. Í byrjun sá einn starfsmaður um tölvuna enda flestir starfsmenn óvanir tölvunotkun. Það má því segja að á Iðavelli hafi börnin tölvuvæðst á undan þorra starfsfólks og starfsmenn lærðu smátt og smátt á tölvurnar og fór námið stundum fram í gegnum börnin. Starfsmenn settust með börnunum við tölvurnar og lærðu með þeim.

Þegar Iðavöllur fluttist tímabundið í Glerárkirkju, á meðan nýtt leikskólahús var byggt, þá voru tölvurnar sem börnin höfðu aðgang að orðnar þrjár talsins. Auk þess hafði leikskólanum áskotnast stafræn myndavél í fertugsafmælisgjöf haustið 1999 og fljótlega eftir flutning voru þær orðnar tvær og um leið varð notkun tölvanna fjölbreyttari.

Þó að tölvan væri aðallega notuð sem leikfang voru ýmis önnur verk unnin í henni með börnunum, til dæmis textavinnsla þar sem börn lásu fyrir sögu eða texta og starfsmaður skráði í tölvuna. Til viðbótar má einnig nefna að unnin voru ljósmyndaverkefni og ekki má gleyma að alltaf hafa börnin teiknað mikið í tölvunum. Prentarar voru tengdar við tvær tölvur og í upphafi var mikið gert að því að prenta myndir barnanna út og hengja þær upp á vegg.

Þegar Iðavöllur flytur í nýtt húsnæði á vordögum 2001 þá fjölgar deildum leikskólans úr einni í fjórar. Tekin var sú stefna að tölvuvæða allar deildir og að auki voru fengnar tölvur fyrir starfsmenn í vinnusvæði þeirra, fyrir sérkennsludeild og skrifstofu leikskólastjóra. Ýmis jaðartæki voru einnig keypt, eins og stafræn myndbandstökuvél, ein stafræn myndavél í viðbót, tölvutengd smásjá, skanni og bleksprautuprentari. Allar nýju tölvurnar voru samtengdar á neti og samnýttu litaprentara í vinnuherbergi starfsmanna og internetaðgang með háhraða sítengingu. Leikskólinn hafði nýlega sett upp heimasíðu og fyrsta veturinn í leikskólanum var hafin vinna við að setja upp heimasíður fyrir allar deildir og  þær fengu eigin tölvupóstfang. Að auki fengu starfsmenn innhringi aðgang og tölvupóstföng sem þeir gátu notað bæði í vinnu og heima.

Þessi nýja aðstaða breytir vinnu með tölvurnar að ýmsu leyti, til dæmis minnkar útprentun mynda að miklum mun, í staðin eru stafrænar myndir settar beint á heimasíður og myndir og verk barna ljósmynduð eða skönnuð og komið á framfæri á heimasíðunum.

Í verkefnavinnu með börnunum er þó nokkuð notast við upplýsingaleit á vefnum og mikið er rannsakað í smásjánni, sérstaklega yfir sumartímann þegar skordýr fara á kreik. Einnig eru unnin kvikmyndaverkefni, bæði með stafrænum ljósmyndavélum og myndbandstökuvélinni.

Með aukinni tæknivæðingu jókst fagleg umræða meðal starfsmanna um málefnið og sýndist sitt hverjum. Haldið var námskeið fyrir alla starfsmenn vorið 2002 og bar það heitið Tölvur og börn. Umræðan sem átti sér stað í kjölfarið er grunnur að þeirri hugmyndafræði sem sett er fram í námskrá leikskólans. Svo dæmi sé tekið varð starfsfólk sammála um að líta á tölvuna sem leikfang og verkfæri sem tengja mætti við öll námssvið leikskóla. Stuðst er við hugmyndafræði Carsten Jessen um vinnu með tölvur í leikskólum en kryddað með hugmyndum starfsmanna og vinnubrögðum sem þróast hafa í gegnum tíðina.